Monday, March 18, 2013

Nú hlær skrattinn dátt með vini sínum

http://www.visir.is/syknadur-af-thvi-ad-bera-sig-fyrir-nagrannana/article/2013130319454

Sá sem fær slaufu á ofbeldispakkann sinn frá Hæstarétti hér er Ægir Geirdal, en hann lagði á sig mikið og skrautlegt erfiði til að reyna að birtast sem "þolandi ofsókna" eftir að hluti af hans skelfilegu brotaslóð var orðin opinber.

Hér kemur örlítið brot af mínum eigin minningum um Ægir Geirdal. Með þeim skilaboðum hve mikla skömm ég hef á réttakerfi sem ræður ekki við að taka á fólki sem fer svona með börn.

„Svo var Ægir búinn að ná mér einu sinni enn. Þá sagði hann mér að runka sér. Og ég bara gerði það. Slapp við að kafna og kúgast við að hann væri að troða sér ofan í hálsinn minn. Í þetta skiptið. Þurfti bara að runka honum. Ég gerði það og fann ekki neitt. Ekki heldur þegar ógeðið fór allt á mig. Á höndina mína og framan í mig. Allstaðar. Bara flýtti mér eins og ég gat svo ég gæti komist í burtu. Aftur út að leika. – Núna finn ég svo sannarlega. Hve ég var skelfingu lostin og ofboðslega þreytt. Skelf og kúgast á meðan ég horfi á minninguna. Horfi nógu lengi til að ná til Ingu litlu sem stóri kallinn er að meiða. Þú Ægir. Sé ekki að litla telpan gráti eða finni til. Fyrr en hún er komin í fangið mitt. Þá finn ég það. Óttann, skjálftann, umkomuleysið. Og það er ekki fyrr en þá sem barnstárin koma. Í stríðum straumi. Ég umvef Ingu litlu og rugga henni í fanginu á meðan tárin renna. Skjálftinn gengur yfir og hún er orðin róleg og örugg í hlýjum faðmi. Lítið barn sem hefur ekkert að óttast lengur.

„Ekki segja“ sagði hann endalaust. „Ekki segja, ekki segja, ekki segja“. Inga litla gegndi og sagði ekki neitt. Vildi ekki að neinn vissi hvað hún var búin að gera mikið ógeð. – En núna segir hún öllum hvað þú lést hana gera Ægir. Hvað þú gerðir henni. Hvernig þú meiddir Ingu litlu í stofunni þinni, inni þar sem páfagaukurinn var og hinu herberginu, sem var með gatinu í veggnum, fyrir klámblöðin þín. Svo meiddirðu hana í herberginu ykkar Lilju, þar sem myndirnar af litlu stelpunum ykkar var og líka úti. Barnið var hvergi óhult fyrir þér.

Þá hélt Inga að þú værir svo stór kall. Núna veit hún að almennilegt fullorðið fólk meiðir ekki lítil börn. Hún veit að þú ert bara pínulítill kall sem þorir ekki einu sinni að gangast við sjálfum þér og eyðir miklum tíma í að fóðra lygina þína. En þú munt ekki komast upp með það Ægir því Inga litla er orðin risa stór og hún hefur mikla og góða rödd.“
 
Ingibjörg Þ Ólafsdóttir

Wednesday, March 6, 2013

http://press.is/index.php/felagidh/frettir/3294-haestirettur-vs-mannrettindadomstollinn-i-strassborg

Hér kveður við annan og ábyrgari tón í fyrirsögn um sama atburð!

Svo gott til þess að vita að þarna úti er fólk sem lætur ekki afvegaleiða sig frá aðalatriðum þessa máls.

Ingibjörg og Sigurlína

http://www.visir.is/aegir-sigrar-i-haestaretti---steingrimur-saevarr-daemdur-fyrir-meidyrdi/article/2013130229766

Maður kemst upp með mjög gróft ofbeldi gegn börnum áratugum saman, hér með stuðningi Hæstaréttar. Í þessum fréttamiðli er það kallað sigur :( ... er ekki augljóst að baráttunni verður að halda áfram? Fyrir okkur, jú!

Ingibjörg og Sigurlína